Alþjóðlega matsfyrirtækið S&P Global Ratings hefur staðfest A/A-1 lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands með stöðugum horfum. S&P reiknar með efnahagsbata á næsta ári eftir 7,8% samdrátt hagkerfisins í ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lánamálum ríkisins.

A er þriðja hæsta langtíma-lánshæfiseinkunn á eftir AA og AAA, en A-1 er hæsta lánshæfiseinkunn skammtímaskuldbindinga.

Í tilkynningu Lánamála segir að þótt orðið hafi verulegt högg í ferðaþjónustu geri matsfyrirtækið ráð fyrir að afgangur verði á viðskipajöfnuði næstu árin. „Þrátt fyrir verulegan stuðning opinberra fjármála við hagkerfið gegn áhrifum faraldursins gerir matsfyrirtækið ráð fyrir að stjórnvöldum takist að rétta af opinber fjármál eftir 2021. Í því samhengi lítur matsfyrirtækið til árangurs í þeim efnum síðasta áratug. Sterk ytri staða veitir hagkerfinu frekari viðnámsþrótt.“

Sterk stofnanaumgjörð og skilvirk stefnumótun er í tilkynningunni sögð styðja við lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs, en smæð hagkerfisins og takmörkuð skilvirkni peningastefnu vegna áhrifa gengisbreytinga á verðbólgu vegi á móti.

Fram kemur í fréttatilkynningu S&P að lánshæfismat ríkissjóðs gæti hækkað ef efnahagsbatinn frá heimsfaraldrinum verður umfram væntingar og leiðir til aukinnar fjölbreytni í íslensku efnahagslífi og útflutningi sem draga myndi úr sveiflum í viðskiptakjörum. Við slíkar aðstæður geti orðið hraðari viðsnúningur í ríkisfjármálum.

Þá gæti lánshæfismat ríkissjóðs lækkað ef heimsfaraldurinn veldur varanlegra tjóni á framleiðslugetu hagkerfisins en gert er ráð fyrir og ef það hefði í för með sér verulega hækkun opinberra skulda sem hlutfall af landsframleiðslu umfram væntingar.