Gengi hlutabréfa hefur hækkað nokkuð á mörkuðum í Bandaríkjunum í dag. Slík er hækkunin að hlutabréfavísitalan S&P-500 hefur fór í rúm 1.848 stig og hefur hún aldrei verið hærri. Reuters-fréttastofan segir fjárfesta óttast að gengi hlutabréfa sé of hátt nú um stundir.

Stuttu eftir að viðskipti hófust á mörkuðum vestanhafs í dag hafði Dow Jones-hlutabréfavísitalan hækkaði um 0,79%, Nasdaq-vísitalan um 0,75% og S&P 500-vísitalan um 0,74%.