Í Morgunkorni Glitnis er reiknað með að vísitala neysluverðs (VNV) hækki um 0,5% milli september og október en Hagstofa Íslands birtir VNV í fyrramálið. Í verðbólguspá sem birt var 24. september var gert ráð fyrir 0,5% hækkun í október og teljum ekki ástæðu til að endurskoða þá spá. Gangi spáin eftir mun tólf mánaða verðbólga hækka úr 4,2% í 4,5%. Við gerum jafnframt ráð fyrir að ársverðbólga muni hækka lítillega milli mánaða það sem eftir er árs og vera nálægt 5% í upphafi næsta árs.

Hækkun húsnæðisverðs og verðhækkun á fötum og skóm mun leiða hækkun vísitölunnar að þessu sinni. Húsnæðisverð hefur hækkað töluvert það sem af er ári og gerum við ráð fyrir að það muni hækka hægar á næstu mánuðum en það hefur gert á fyrri hluta ársins. Útsölum á sumarfatnaði lauk í ágúst og olli koma vetrarfatnaðar í verslanir 13,5% verðhækkun á fötum og skóm í september. Við gerum ráð fyrir að sá liður hækki einnig í október en að hækkunin verði mun minni en í september. Aðrir undirliðir munu einnig hækka samkvæmt spá okkar en ekki verulega. Í því sambandi má nefna matvörur og eldsneyti. (HDV)