Greiningardeild Arion banka spáir 0,6% hækkun á vísitölu neysluverðs. Þetta kemur fram í Markaðspunktum deildarinnar . Þá mun árstaktur verðbólgunnar hækka í 2,9% úr 2,7% frá síðasta mánuði.

„Verðbólguspáin nú gerir ráð fyrir því að mánaðartaktur verðbreytinga sé að breytast. Gangi spáin eftir þá hefur mánaðarhækkun vísitölu neysluverðs ekki verið hærri síðan í júní á þessu ári," segir í spánni.

Greinendur bankans gera ráð fyrir hækkun á nær öllum undirvísitölum en í júní voru flugfargjöld og fasteignaverð sem báru þungan af verðhækkunum.

„Þar til í apríl á þessu ári var ársverðbólga án húsnæðis neikvæð en hefur síðan farið hratt hækkandi sem bendir til þess að liðir sem höfðu verðhjöðnunaráhrif þar til fyrir stuttu eru farnir að ýta verðlagi upp á við. Á sama tíma hefur dregið úr hækkunum á fasteignaverði en þar sem fasteignaverðið er enn að hækka þá leiðir þessi þróun til hækkandi verðbólgu."

Fram kemur að veiking íslensku krónunnar sé stór þáttur í verðbólguspánni og muni halda áfram að vera þar að öðru óbreyttu. Samkvæmt líkani greingardeildarinnar er gert ráð fyrir því að verðbólgan í október og næstu mánuði verði meiri heldur en spár gera ráð fyrir.

Minni hækkun fasteignaverðs

Greinendur bankans spá því að árstaktur fasteingaverðs á höfuðborgarsvæðinu haldi áfram að lækka, þó svo hann muni ennþá vera jákvæður. Þó er talið að árstaktur á verði fjölbýlis muni hækka á næstunni en árstaktur á verði sérbýlis muni lækka.

„Ásett verð fjölbýlis hefur hækkað um 3,8% undanfarið ár og ásett verð sérbýlis um 1,9% á sama tíma og m.v. 2,7% verðbólgu í september þá nemur raunbreyting ásetts verðs fjölbýlis 1,1% og sérbýlis -0,8%. Ef skammtímaverðbólguspá Greiningardeildar gengur eftir og 12 mánaða taktur húsnæðisverðs á höfuðborgarsvæðinu helst óbreyttur, þá nemur raunhækkun ásetts verðs fjölbýlis 0,2% en sérbýlis -1,6% í árslok," segir í greiningunni.