Greiningadeild Arion banka spáir því að verðlag lækki um 0,6% í útsölum janúar. Deildin spáir því jafnframt að það verði 0,6% hækkun í febrúar á næsta ári þegar útsölur byrja að ganga til baka og 0,4% hækkun í mars. Gangi spá bankans eftir mun ársverðbólgan standa í 1,8% í mars á næsta ári. Þetta kemur fram í greiningu greiningardeildar Arion banka .

Eins og Viðskiptablaðið hefur áður greint frá var vísitala neysluverðs á verðlagi í desember 2016 er 439 stig (maí 1988 = 100) og hækkar um 0,14% frá nóvember.

Án húsnæðis stendur vísitalan í 392,7 stigum og lækkar um 0,18% frá fyrri mánuði.

Tólf mánaða taktur vísitölu neysluverðs hækkaði um 1,9% og án húsnæðis hefur hún lækkað um 0,8%. Á sama tíma í fyrra var verðbólgan 2%. Innlendar vörur án búvöru hafa hækkað um 1,3% síðastliðið ár og verðhjöðnun á innfluttum vörum nemur 3,5%.

Kostnaður við búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 1,6%.