Greining Íslandsbanka gerir ráð fyrir að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka um 0,3% í mars. Reynist spáin á rökum reist mun 12 mánaða verðbólga lækka úr 17,6% í 16,2%, en verðbólga fór hæst í 18,6% í janúar síðastliðnum.

Þetta kemur fram í Morgunkorni Glitnis.

Þar kemur fram að áhrif gengishruns krónu á haustmánuðum í fyrra eru nú að fjara út, og raunar séu þegar farin að sjást merki um jákvæð áhrif gengisstyrkingar síðustu mánaða í þeim liðum VNV sem hraðast bregðast við gengisbreytingum, s.s. innfluttri ferskvöru og eldsneyti.

Á móti komi áhrif af útsölulokum sem enn gætir í liðum á borð við föt og skó, sem og húsgögn og heimilisbúnað.

Póst- og símakostnaður mun að mati Greiningar Íslandsbanka einnig hækka talsvert í kjölfar verðskrárhækkunar annars af stóru símafyrirtækjunum.

„Við teljum að 12 mánaða verðbólga muni ganga hratt niður það sem eftir lifir árs,“ segir Greining Íslandsbanka. D

„Djúp efnahagslægð gengur nú yfir Ísland, atvinnuleysi stefnir í sögulegar hæðir, verðlækkun mun einkenna íbúðamarkað á komandi ársfjórðungum og hrávöruverð hefur lækkað verulega frá miðju síðasta ári á heimsmarkaði.“

Þá spáir Greining Íslandsbanka að verðbólga verði komin niður fyrir 4% í upphafi næsta árs og að verðbólgan verði undir 2,5% markmiði Seðlabankans allan seinni hluta þess árs.

Sjá nánar Morgunkorn Íslandsbanka