IFS Greining spáir því að hagnaður Alfesca á síðustu þremur mánuðum ársins 2008 (sem er annar fjórðungur í reikningsári félagsins) verði 21,3 milljónir evra. Til samanburðar má nefna að hagnaður á sama fjórðungi 2007 nam 22,5 milljónum evra.

Í umfjöllun um Alfesca segir að nýliðinn fjórðungur skipti sköpum fyrir afkomu ársins í heild, en um 40% af veltu og rúm 60% af EBITDA Alfesca falla til á þessum ársfjórðungi.

Þá segir að mikil óvissa ríki um eignarhald í félaginu og telur greiningin því að fjárfestar geri rétt í því að bíða fregna af eignarhaldinu.