Hagstofa Íslands hefur í dag gefið út þjóðhagsspá á vetri í ritröð sinni, Hagtíðindum. Spáin nær til áranna 2014-2018. Í henni er m.a. gert ráð fyrir að landsframleiðsla aukist um 2,7% á þessu ári og 3,3% 2015.

Gert er ráð fyrir að hagvöxtur verði 2,7% árið 2014, 3,3% árið 2015 en 2,5-2,9% árin 2016 til 2018. Fjárfesting er talin aukast um 14% árið 2014, 18,7% árið 2015 og 14,6% árið 2016, en gert ráð fyrir að stóriðjufjárfesting dragist saman árin 2017 og 2018 sem leiðir til þess að fjárfesting stendur í stað þau ár.

Einkaneysla jókst lítið 2013 en í spánni er reiknað með að hún aukist um 3,9% 2014, 4% árið 2015 en um og yfir 3% á ári eftir það. Hóflegur vöxtur samneyslu verður á fyrstu árum spátímans eða 1,8% árið 2014 og um 1,5% árlega eftir það. Mikill vöxtur neyslu og fjárfestingar árin 2014-2016 leiðir til þess að þjóðarútgjöld aukast um 4,7% árið 2014, 5,6% árið 2015, 5,1% árið 2016 en mun minna eftir það.

Verðbólga verður 2,2% árið 2014, nokkuð undir verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands. Spáð er að verðbólga verði 2,7% árið 2015, 3% árið 2016 en fari í 2,6% árið 2018. Vöru- og þjónustujöfnuður verður jákvæður allan spátímann en minnkar með aukinni neyslu og fjárfestingu.

Talsverð óvissa er um þróun launa og verðlags árið 2015 vegna kjarasamninga sem þá losna. Í spá Hagstofunnar er gert ráð fyrir nokkru meiri launahækkunum á almennum vinnumarkaði en í gildandi samningum en að lítil verðbólga auki líkur á hóflegum launabreytingum.

Þá kemur fram að lækkun á greiðslubyrði húsnæðislána vegna skuldalækkunaraðgerða stjórnvalda myndi svigrúm til aukinnar einkaneyslu á spátímabilinu.

Lesa má þjóðhagsspá Hagstofunnar hér .