Að mati greiningardeildar KB banka mun verðbólga á þessu ári verða 3,8% og ná lágmarki í næsta mánuði, en þá verður 12 mánaða verðbólga 2,4%. Eftir það spáir greiningardeild aukin spennu á vinnumarkaði og að lækkandi gengi krónunnar skapi aukinn verðbólguþrýsting. "Raunar er það svo að verðbólga í hefðbundnum skilningi þess orðs ? þ.e. almennar hækkanir á vöru og þjónustu ? hefur verið í lágmarki hérlendis á síðustu 12 mánuðum. En 12 mánaða verðbólga án húsnæðis er nú í kringum 0%," segir greiningardeild.

Þessi verðbólgulækkun hefur þó að miklu leyti verið fengin fram með því að ýta gengi krónunnar töluvert upp fyrir jafnvægisgengi sem verður ? þegar fram í sækir ? að teljast frestun fremur en niðurkvaðning á verðhækkunum. Ennfremur fer brátt að koma að þeim stað í hagsveiflunni að atvinnuleysi fer að ganga niður fyrir það krítíska mark er setur launaskrið af stað, jafnvel þó innflutningur á erlendu vinnuafli muni að einhverju leyti vinna á móti þeirri þróun segir í frétt greiningardeildar KB banka.