Greiningardeild Arion banka spáir 0,8% hækkun á vísitölu neysluverðs í desember en samkvæmt spánni hækkar 12 mánaða taktur verðbólgunnar í 3,8% úr 3,3% frá því í síðasta mánuði. Þetta kemur fram í Markaðspunktum greiningardeildarinnar.

„Áhrifa gengisveikingar krónunnar er farið að gæta í auknum mæli, sem og aukinnar verðbólgu í okkar helstu viðskiptalöndum. Þeir þættir sem leggja hvað mest til hækkunar vísitölunnar í desember eru allir viðkvæmir fyrir gengishreyfingum krónunnar, s.s. flugfargjöld til útlanda, bílverð, matarkarfan, tómstundir (m.a. raftæki), fatnaður og húsgögn. Aðeins einn þáttur vegur til lækkunar að þessu sinni, og það er eldsneytisverð," segir í greiningunni.

Fasteignaverð hækkað um 5,5%

Fasteignaverð hefur hækkað um 5,5% unanfarna 12 mánuði samkvæmt mælingum Hagstofunnar. Fasteignaverð á landsbyggðinni hefur hækkað mest en hún nam 11,1% á meðan fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað minna. Árstaktur fasteignaverðs fór hæst um mitt ár 2017 og hefur farið lækkandi síðan.