Framleiðni í byggingariðnaði vex hægar en í öðrum greinum og hefur það skaðleg áhrif á íbúðamarkað á sama tíma og búist er við meira þúsund milljarða fjárfestingu í mannvirkjum á Íslandi næstu þrjú árin. Aukin framleiðni í byggingariðnaði myndi stuðla að ódýrari íbúðum og leiða til þess að húsnæðisvandi þjóðarinnar leysist hraðar en nú er raunin.

Þetta eru á meðal niðurstaðna nýrrar greiningar Íbúðalánasjóðs og Íslenska byggingavettvangsins sem byggir á niðurstöðum rannsóknar á framleiðni í íslenskum byggingariðnaði.

Greiningin var kynnt á fjölmennum fundi í höfuðstöðvum Íbúðalánasjóðs í dag. Skortur hefur einkennt framboðshlið húsnæðismarkaðarins síðustu ár og fram kom í máli fundarmanna að aukin framleiðni í byggingariðnaði sé eitt mikilvægasta verkefni húsnæðismála um þessar mundir.

Rúmlega 1.000 milljarða uppbygging næstu þrjú ár

Á næstu þremur árum má gera ráð fyrir því að fjárfestingar í mannvirkjum hér á landi nemi samtals rúmlega 1.000 milljörðum króna. Þar af er fjárfesting í atvinnumannvirkjum tæpir 500 milljarðar, fjárfesting í íbúðum rúmir 400 milljarðar og fjárfesting í mannvirkjum hins opinbera tæpir 200 milljarðar.

Umfang mannvirkjagerðar hér á landi nálgast nú árin fyrir hrun, þó enn sé nokkuð í hápunkt áranna 2006 og 2007.

Þegar svo miklar fjárhæðir eru undir skiptir öllu máli að uppbyggingin sé hagkvæm til að nýta sem best þá framleiðslugetu sem er til staðar í byggingariðnaði segir í fréttatilkynningu um málið frá Íbúðalánasjóði.

Undanfarin ár hafa fyrirtæki í byggingariðnaði vaxið hratt, en nú eru ákveðin ummerki um vaxtarverki. Gríðarlegur skortur hefur myndast á fagfólki í mannvirkjagreinum og færri fyrirtæki en áður vilja fjölga starfsfólki, þrátt fyrir góða verkefnastöðu.

Sveiflur í byggingariðnaði mun meiri en annars staðar

Sveiflur í byggingariðnaði hér á landi eru á bilinu tvöfalt til þrefalt meiri en í öðrum greinum. Fyrirtækin í byggingariðnaði eru að meðaltali smærri en önnur fyrirtæki og nýsköpun á meðal þeirra er minni. Meðal annars af þessum sökum vex framleiðni í byggingariðnaði hægar en í öðrum greinum hagkerfisins, bæði á Íslandi og erlendis.

Lítil framleiðni í byggingariðnaði veldur því einnig að sveiflur á íbúðamarkaði verða meiri en ella. Lengri tíma tekur að byggja íbúðir og meira vinnuafl þarf á hverja íbúð. Því getur aukin framleiðni í byggingariðnaði stuðlað að auknum stöðugleika í húsnæðismálum.

Ótal tækifæri til úrbóta

Ný rannsókn á framleiðni í byggingariðnaði leiðir í ljós fjölmörg atriði sem stjórnvöld og greinin sjálf þurfa að taka til gagngerrar skoðunar. Á meðal þess er að reglugerðir og lög í bygginga- og skipulagsmálum geta komið í veg fyrir aukna hagkvæmni í uppbyggingu.

Málsmeðferð í  bygginga- og skipulagsmálum þykir oft og tíðum vera brotakennd. Þá skiptir miklu máli að stjórnvöld reyni að jafna sveiflur í greininni með því að tímasetja opinberar framkvæmdir þegar önnur fjárfesting er lítil.

Fyrirtæki í mannvirkjagreinum hafa einnig tækifæri til úrbóta í eigin ranni. Aukin gæðastjórnun, bætt verkefnastjórnun, bætt skipulag á vinnustöðum og nýjar framleiðsluaðferðir eru á meðal þeirra þátta sem fyrirtækin geta sjálf beitt til að auka hagkvæmni í rekstri og þar af leiðandi lækka byggingakostnað.

Lykillinn að auknum stöðugleika

Ólafur Heiðar Helgason, hagfræðingur í hagdeild Íbúðalánasjóðs segir ljóst er að mikil þörf sé á uppbyggingu húsnæðis víða um land. „Það skiptir miklu máli að sú uppbygging verði hagkvæm og í samræmi við þörf landsmanna. Um árabil hafa Íslendingar búið við miklar sveiflur í húsnæðismálum,“ segir Ólafur.

„Það þarf að minnka þessar sveiflur til þess að auka framleiðni, lækka byggingakostnað og tryggja að húsnæði fáist á viðráðanlegu verði fyrir almenning. Aukin framleiðni í byggingariðnaði er því ekki aðeins góð fyrir þá sem starfa í greininni sjálfri, heldur er hún lykilatriði til að stuðla að auknum stöðugleika í húsnæðismálum.“

Enginn undanskilinn

„Rannsóknin um framleiðni í bygginga- og mannvirkjagreinum sýnir að það þarf að taka til hendinni í allri virðiskeðju byggingaframkvæmda,“ segir Hannes Frímann Sigurðsson, verkefnastjóri Íslenska byggingavettvangsins

„Sóknarfærin eru mörg en krefjast þess að allir líti á hvað þeir geta gert til að auka framleiðni á sínum vinnustað, og þar er enginn undanskilinn.“