Greining Glitnis spáir 45% hækkun á Úrvalsvísitölu Kauphallarinnar á árinu 2007. Á fyrsta fjórðungi hækkaði Úrvalsvísitalan um 16,8% og á öðrum fjórðungi um 10,8%. Greining Glitnis telur að vísitalan hækki um 12% til viðbótar á árinu.

"Góð arðsemi, stöðugur rekstur, ytri vöxtur og væntingar þar um munu að okkar mati stuðla að hækkun á verði hlutabréfa á árinu. Greitt aðgengi að fjármagni mun einnig hafa jákvæð áhrif. Á móti kemur að háir innlendir skammtímavextir auk hækkandi vaxta erlendis munu draga úr áhuga fjárfesta á hlutabréfum. Kann því hluti fjárfesta að gera sér ávöxtun öruggari fjárfestingakosta að góðu," segir í Morgunkorni Glitnis.

Þar kemur einnig fram að þeir gera almennt ráð fyrir góðri afkomu hjá fjármála- og fjárfestingarfyrirtækjum og að þau styðji að stærstum hluta við hækkun hlutabréfaverðs til ársloka. Þeir gara ráð fyrir að mörg rekstrarfélaganna skili lakari ávöxtun en fyrrnefnd félög. Undantekningin er Icelandair en Greining Glitnis býst við góðri afkomu þess félags á öðrum og þriðja fjórðungi.