Fjármálaráðuneytið gerir ráð fyrir samdrætti íbúðafjárfestinga 2007. Miðað við síðustu vísbendingar um kaupáform heimilanna, hækkun verðtryggðra vaxta á íbúðalánamarkaði og að íbúðabyggingar hafi farið langt fram úr langtímaleitni er áætlað að samdrátturinn í ár nemi um 5% segir í vefriti fjármálaráðuneytisins.

Í endurskoðaðri þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins kemur fram að árið 2006 tók að hægja á og síðan draga úr eftirspurn á íbúðamarkaði. Eftir mikla aukningu á framboði nýrra fjölbýlisíbúða á höfuðborgarsvæðinu
undanfarin ár hefur sú staða nýlega komið upp að nokkuð er um óseldar nýjar eignir. Nafnverð íbúða hefur staðið sem næst í stað frá miðju síðastliðnu ári en raunverð miðað við neysluvísitölu hefur tekið að lækka. Hraði verðbreytinga hefur einnig minnkað óðfluga og var í desember 2006 kominn undir verðbólgu mælda með vísitölu neysluverðs.

Árið 2008 er spáð að íbúðafjárfesting dragist minna saman, eða um tæp 2% segir í vefritinu.