Gert er ráð fyrir að árið 2017 verði hagvöxtur 6%, að einkaneysla aukist um 6,9%, fjárfesting um 9,8% og samneysla um 1,8%. Þetta kemur fram í nýrri þjóðhagsspá Hagstofu Íslands.

Hins vegar er gert ráð fyrir því að á næsta ári dragist talsvert úr vexti hagkerfisins, en þá er hagvöxtur talinn vera 3,3%, aukning einkaneyslu 5,2%, fjárfestingar 4% og samneyslu 1,3%. Árin 2019 til og með 2022 er gert ráð fyrir að hagvöxtur verði á bilinu 2,5–2,8%, að einkaneysla verði á bilinu 2,5–3,4%, fjárfesting aukist um 2,7–4,8% og samneysla aukist um 1,2–1,8%. Hagvöxtur í fyrra var 7,2%.