Aldrei hafa jafn fáar einkatölvur selst á árinu og nú. Markaðsfyrirtækið IDC spáir því að samdrátturinn muni nema 10,1% á þessu ári. Verði það raunin verður þetta mesti samdráttur í tölvusölu sem mælst hafi frá því einkatölvurnar litu dagsins ljós. Í netútgáfu The Times of India er því bætt við að útlit sé fyrir að eins og staðan sé nú megi reikna með 3,8% samdrætti í tölvusölu á næsta ári.
Forsvarsmenn IDC segja þróunina eðlilega enda hafi spjaldtölvur og snjallsímar tekið við hlutverki einkatölvunnar að stórum hluta.
Einkatölvan heyrir þrátt fyrir þetta ekki sögunni til. Þvert á móti nota flestir enn við slíkar tölvur við vinnu sína, þ.e. borðtölvur eða fartölvur, í meiri mæli en aðrar græjur.