Greining Íslandsbanka spáir því að tólf mánaða verðbólga mælist 2,1% í janúar og lækki úr 2,5% frá því í desember. Rætist spáin hefur verðbólga ekki verið lægri frá því um mitt ár 2003. Hagstofan birtir vísitölumælingu sína þann 26. janúar næstkomandi. Spáð er að vísitala neysluverðs (VNV) muni lækka í janúar um 0,7% frá desembermánuði.

Útsölur hafa áhrif

„Það sem skýrir lækkun vísitölunnar nú eru fyrst og fremst tveir þættir: Annars vegar eru það útsölur, sem hafa jafnan veruleg tímabundin lækkunaráhrif á VNV í janúarmánuði. Við gerum ráð fyrir svipuðum útsöluáhrifum að þessu sinni og raunin hefur verið hin síðustu ár, og áætlum að útsölur á fötum og skóm muni vega til 0,7% lækkunar VNV, en í heild gætu útsöluáhrifin vegið til u.þ.b. 1% lækkunar VNV. Þá kemur nú til sögunnar breyting á útreikningi kostnaðar við útvarp og sjónvarp, en Hagstofan tilkynnti fyrir áramót að hún mæti útvarpsgjaldið nú sem beinan skatt fremur en notendagjöld. Þessi breyting verður til þess að lækka útvarps- og sjónvarpslið VNV um 40% í janúar, sem hefur áhrif til 0,4% lækkunar á vísitölunni nú.

Á móti þessum lækkunarþáttum vega gjaldskrárhækkanir, sem jafnan eru talsverðar um áramót, sem og hækkun opinberra gjalda á liði á borð við áfengi og eldsneyti. Einnig teljum við að matar- og drykkjarvöruliður vísitölunnar muni hækka nokkuð að þessu sinni. Þá eru teikn á lofti um að húsnæðisliður vísitölunnar muni heldur hækka þennan mánuðinn.“ segir í Morgunkorni Íslandsbanka í dag.

Von á hækkunum

„Í kjölfar lækkunar í janúar gerum við ráð fyrir því að VNV hækki nokkuð það sem eftir lifir 1. ársfjórðungs. Teljum við þannig að vísitalan muni á heildina litið hækka um 0,6% frá ársbyrjun til marsloka. Áhrif útsöluloka munu væntanlega gera gott betur en vega upp mælda verðlækkun á fötum og skóm í janúar þegar fram í sækir, og áhrif af hækkandi hrávöruverði undanfarið munu ef að líkum lætur gera vart við sig í matvöruverði og fleiri innfluttum liðum á næstunni. Þá eiga innlend fyrirtæki trúlega enn eftir að velta einhverjum hluta undanfarinna kostnaðarhækkana út í verð vöru sinnar og þjónustu.

Þótt merki séu um nokkurn verðþrýsting á vörur og þjónustu til skemmri tíma litið erum við enn þeirrar skoðunar að hófleg verðbólga einkenni árið í heild. Spáum við því að verðbólga reynist að meðaltali 2% á komandi ári og sömuleiðis spáum við 2% verðbólgu um næstu áramót. Horfur eru síðan á að heldur bæti í hækkunartaktinn á næsta ári, þótt verðbólga gæti þá einnig orðið í námunda við 2,5% markmið Seðlabankans.

Spá okkar gerir ráð fyrir tiltölulega stöðugu gengi krónu, hóflegri hækkun launa og hækkun íbúðaverðs þegar fram í sækir. Óvissa tveggja fyrrnefndu þáttanna er fremur á þann veg að verðbólguþrýstingur vegna þeirra geti orðið meiri en hér er spáð, en óvissa síðastnefnda áhrifaþáttarins er að mati okkar frekar til þess að draga úr verðbólguþrýstingi á spátímanum.“