„Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabankans muni ákveða að lækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentur á næsta vaxtaákvörðunarfundi, sem verður 21. maí næstkomandi. Er þar með lokið lengsta tímabili óbreyttra stýrivaxta í sögu verðbólgumarkmiðs bankans,“ segir Greining Íslandsbanka í stýrivaxtaspá sinni í dag. Gangi þetta eftir fara stýrivextir úr 6% í 5,75%.

Fjallað er ítarlega um vaxtaspá bankans í Morgunkorni Greiningar í dag. Þar segir að búast megi við því að vaxtalækkunin nú verði eina vaxtabreytingin á árinu. Helstu rök Greiningar Íslandsbanka fyrir lækkuninni nú eru þau að verðbólga er undir 2,5% verðbólgumarkmiði bankans, verðbólguhorfur munu væntanlega batna samkvæmt nýrri spá, gengi krónunnar verið stöðugt frá síðustu vaxtaákvörðun og að kjarasamningum hefur verið lent í samræmi við verðbólgumarkmið fyrir stærstan hluta vinnumarkaðarins.

Greining Íslandsbanka segir ennfremur:

„Í samræmi við spá okkar opnaði peningastefnunefndin á vaxtalækkun á síðasta vaxtaákvörðunarfundi hennar 19. mars síðastliðinn. Samkvæmt fundargerð þótti peningastefnunefndinni þá helst koma til álita að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum eða lækka þá um 0,25 pósentur. Sagði í yfirlýsingu nefndarinnar vegna ákvörðunarinnar að það færi eftir þróun verðbólgu og verðbólguvæntinga næstu mánuði hvort skapast gæti tilefni til lækkunar nafnvaxta. Nefndarmenn voru sammála um að verðbólguhorfur hefðu batnað en töldu ekki tímabært að lækka vexti meðal annars þar sem lengri tíma verðbólguvæntingar virtust enn vera töluvert yfir verðbólgumarkmiðinu. Allir studdu tillögu Seðlabankastjóra um óbreytta stýrivexti.“