Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka um 0,2% milli mánaða í september. Gangi spáin eftir mun 12 mánaða verðbólga hjaðna niður í 3,1% en í nýliðnum ágúst mældist hún 3,2%.

Deildin segir verðbólguhorfur til næstu missera vera allgóðar vegna hægari hækkunar íbúðaverðs, tiltölulega stöðugrar krónu og væntinga um hóflegar launahækkanir. Spáir Íslandsbanki 0,2% hækkun VNV í október, 0,1% hækkun í nóvember og 0,5% hækkun í desember. Gangi spáin eftir verði 12 mánaða verðbólga við verðbólgumarkmið Seðlabankans í árslok eða 2,4%.

Árlega lækkar verð flugfargjalda á haustin og er það sá liður sem hefur afgerandi mest áhrif til lækkunar á VNV í spá deildarinnar í mánuðinum. Samkvæmt spánni lækkar liðurinn flutningar í lofti um 6% (-0,11% í VNV). Einnig er reiknað með að verð á eldsneyti lækki um 0,5% í mánuðinum (-0,02% í VNV).

Það dregur úr áhrifum útsöluloka í september miðað við mánuðinn á undan og spáir deildin að fata- og skóverð muni hækka 3% (o,12% í VNV). Þá komi húsgögn og heimilisbúnaður til með að hækka um 2% í verð (0,09% í VNV). Af öðrum liðum sem vega til hækkunar VNV í spánni er árviss verðhækkun á námskeiðum og íþróttaiðkun. Þá er einnig reiknað með að 0,3% hækkun matvæla- og drykkjarverðs.

„Við spáum því að húsnæðisliðurinn í heild verði nánast óbreyttur í ágúst (0,03% í VNV). Hækkunaráhrifin eru bundin við greidda húsaleigu, sem við gerum ráð fyrir að hækki um 0,3%.

Mæling okkar bendir til þess að lítilsháttar hækkun mælist á íbúðaverði milli mánaða. Á móti vegur hins vegar að vaxtaþáttur reiknaðrar húsaleigu, sem byggður er á vaxtaþróun íbúðalána, hefur farið lækkandi og gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga mælist óbreytt í septembermánuði á milli mánaða.

Framboð íbúða hefur verið að aukast jafnt og þétt og dregið hefur úr eftirspurn. Margt bendir til þess að ákveðið jafnvægi sé að myndast á íbúðamarkaði og mun sú þróun væntanlega einnig einkenna komandi mánuði,“ segir í greiningu Íslandsbanka.

Til lengri tíma litið gerir Greining Íslandsbanka að verðbólga verði að jafnaði 2,6% á næsta ári og 2,8% árið 2021. „Gangi það eftir má Seðlabankinn vel við una enda gera stöðugar verðbólguhorfur honum mun auðveldara fyrir að mýkja hagsveifluna með viðeigandi vaxtabreytingum. Stærstu óvissuþættir í spá okkar eru hugsanleg veiking krónu yfir vetrarmánuðina og launakröfur í kjarasamningum sem enn á eftir að ljúka. Á móti gæti þó þróun íbúðaverðs leitt til minni verðbólgu en hér er spáði,“ segir í lokaorðum greiningar Íslandsbanka.