Greiningardeild Kaupþings banka spáir 0,6% hækkun á vísitölu neysluverðs í október og að 12 mánaða verðbólga standa í stað í 7,6%.

Greiningardeildin hefur sent frá sér aukaútgáfu með verðbólguspá. Að þessu sinni munu hækkun á verði matvöru, fatnaðar og húsnæðis leggja mest til hækkunar á vísitölunni en lækkun eldsneytisverðs vega á móti
Matvælaverð hefur verið að hækka mikið að undanförnu og gerir Greiningardeild ráð fyrir áframhaldi af því.
Lok sumarútsala er enn að skila sér inn í verðalag og gerir Greiningardeild ráð fyrir um 4% hækkun á fatnaði og skóm milli mánaða.

Hærra fasteignaverð mun leiða til 0,08% hækkun á VNV nú samkvæmt mati Greiningardeildar.
Afnotagjöld munu einnig hækka um 8% um mánaðarmótin sem að mati Greiningardeildar mun leiða til 0,05% hækkun VNV.

Eldsneytisverð hefur lækkað í mánuðinum og gerir Greiningardeild ráð fyrir að það muni lækka um 4% milli mánaða og leiða til 0,25% lækkun á VNV.