Greiningardeild Arion banka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) lækki um 0,3% í júlí frá fyrri mánuði. Í Markaðspunktum greiningardeildarinnar segir að gangi spáin eftir muni ársverðbólgan standa í stað milli mánaða og mælast 2,2%.

Júlí er útsölumánuður og því munu verðmælingar litast af þeim áhrifum en greiningardeildin gerir þó ráð fyrir að áhrifin gangi að fullu leyti til baka í ágúst og september. Húsnæðisverð hefur hækkað að undanförnu og er gert ráð fyrir að sú þróun haldi áfram í júlí mánuði sem vegi að einhverju leyti á móti verðlækkunum á útsöluvörum.

Flugliðurinn er stærsti óvissuþátturinn í spánni en gert er ráð fyrir að flugfargjöld lækki og hafi um 0,1% áhrif til lækkunar á vísitölunni. Aðrir liðir hafa minni áhrif á verðlag í mánuðinum en helst má nefna að matarkarfan og hótel og veitingastaðir hafa væg áhrif til hækkunar á VNV á meðan aðrir liðir s.s. tómstundir og menning hafa áhrif til lækkunar.