Greiningardeild Arion banka spáir því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum. Þetta kemur fram í markaðspunktum Arion banka. Peningastefnunefnd mun tilkynna ákvörðun sína 24 ágúst næstkomandi.
Verðbólga mælist nú 1,1% og telur greiningardeildin að hún lækki niður í 0,8% á næstu misserum. Þar sem horfur eru á að verðbólga haldist undir markmiðum seðlabankans, telur greiningardeildin það jafnvel líklegra að peningastefnunefnd ákveði að lækka vexti þegar fram í sækir.
Greiningardeildin spáir því einnig að peningastefnunefnd fari að breyta um tón. Hingað til hefur seðlabankinn verið í viðbragðsstöðu. Að mati sérfræðinga Arion banka, eru líkurnar á að auka þurfi aðhald þó umtalsvert minni en áður sökum hagstæðrar verðbólguþróunar sem byggist á lítilli innfluttri verðbólgu og gengisstyrkingu krónunnar.
Þessir þættir hafa samkvæmt bankanum náð að vega upp á móti launahækkunum síðustu mánaða, auk þess sem fyrirtæki í landinu hafa tekið launahækkanir á sig í meiri mæli en reiknað var með.
Verðbólguhorfur fyrir næstu 18 mánuði hafa batnað til muna og virðist sem verðbólguþrýstingur vegna nýlegra kjarasamninga fari dvínandi. Þegar horft er fram á við telja greinendur að innfluttar vörur haldi áfram að lækka í verði.
Ef áform stjórnvalda um að fella niður tolla fara í ársbyrjun 2017 ganga eftir ætti það að mati sérfræðinganna einnig að hafa jákvæð áhrif á verðbólguþróun. Í fjárlagafrumvarpi ársins 2016 var gert ráð fyrir því að slík aðgerð gæti lækkað vísitölu neysluverðs um 1%.
Batnandi verðbólguhorfur endurspeglast ættu einnig að endurspeglast í lækkun verðbólguálags á skuldabréfamarkaði og er það merki um vaxandi kjölfestu verðbólguvæntinga. Raunvaxtastig hefur því hækkað hvort sem litið er til nafnvaxta að frádreginni verðbólgu eða verðbólguvæntinga og vekur það upp spurningu hvort aðhald peningastefnunnar sé of mikið.