Greiningardeild Landsbankans hefur spáð fyrir um afkomu 17 félaga, bæði fyrir þriðja ársfjórðung og fyrir árið í heild. Helstu niðurstöður spárinnar eru þær að gert er ráð fyrir að hagnaður rúmlega tvöfaldist milli ára og það verði 132% hagnaðaraukning á þriðja ársfjórðungi. Einnig spá þeir því að velta muni aukast um 17,5% milli ára gangi spáin eftir, mest hjá Actavis, Össuri og Bakkavör.

Þrátt fyrir mikinn tekjuvöxt er gert ráð fyrir að framlegð hækki lítillega milli ára á þriðja ársfjórðungi. Þá er gert ráð fyrir að mikill gengishagnaður og vöxtur einkennir uppgjör ársins.