Eldflaugafyrirtæki Elon Musk, SpaceX hyggst safna hálfum milljarði dollara í fjármögnunarumferð samkvæmt heimildum Wall Street Journal. Stærð fjármögnunarinnar verðmetur fyrirtækið á 30,5 milljarða dollara.

Samkvæmt WSJ mun auknu fjármagni verða safnað frá bæði núverandi fjárfestum en þá mun fjárfestingafyrirtækið Baillie Gifford & Co, sem er þriðji stærsti eigandi Tesla einnig taka þátt.

Fjárfestar munu í útboðinu borga 186 dollara á hlut sem er um 10% hærra verð en í síðustu fjármögnunarumferð sem fram fór í apríl síðastliðnum.