Flest bendir til að íslenska hagkerfið sé enn á leið inn í skeið hjaðnandi hagvaxtar eftir öflugt uppgangstímabil tengt markaðs- og alþjóðavæðingu þess, segir í endurskoðaðri þjóðhagsspá sem fjármálaráðuneytið sendi frá sér fyrr í dag.  Ráðuneytið segir að aðhaldssöm hagstjórn, lok yfirstandandi stóriðjuframkvæmda, lækkun hlutabréfaverðs og minna framboð af ódýru erlendu lánsfé dragi úr innlendri eftirspurn og ójafnvægi í þjóðarbúskapnum muni minnka á spátímanum.

Gert er ráð fyrir í endurskoðaðri spá að óróleiki á alþjóðlegum og innlendum fjármálamarkaði gangi niður og að hagvöxtur í heiminum verði áfram mikill en nokkru minni en áður var talið m.a. vegna útlánatapa á fasteignamörkuðum. Óvissuþættir í spánni eru taldir vera nokkru meiri en oft áður. Helst ber að nefna þróun á innlendum og erlendum fjármálamörkuðum, gengi krónunnar, kjarasamninga og frekari stóriðjuframkvæmdir

Spáir 1,4% hagvexti 2008

Áætlað er að hagvöxtur hafi numið 2,7% árið 2007, sem er tveim prósentustigum meira en í haustspá vegna meiri einkaneyslu og minni samdráttar í fjárfestingu. Þrátt fyrir aukinn óróleika á alþjóðlegum fjármálamörkuðum og lækkun hlutabréfaverðs frá miðju síðasta ári gerir endurskoðuð þjóðhagsspá áfram ráð fyrir hóflegum hagvexti árið 2008, eða 1,4%, þegar hagfelld þróun utanríkisviðskipta yfirstígur áframhaldandi samdrátt innlendrar eftirspurnar.  Árið 2009 er útlit fyrir 0,4% hagvöxt, sem er einu og hálfu prósentustigi minna en í haustspá þegar vöxtur einkaneyslu og fjárfestingar gefur eftir. Viðskiptahalli á árinu 2007 er nú talinn minni en áður var gert ráð fyrir, eða um 12,8% af landsframleiðslu, aðallega vegna hagstæðari þáttatekjujafnaðar. Spáð er að hann minnki hratt og verði 9,6% árið 2008 og 6,8% af landsframleiðslu árið 2009.  Endurskoðuð þjóðhagsspá gerir ráð fyrir að atvinnuleysi í ár verði minna en gert var ráð fyrir í haustspá, eða 1,9% af vinnuafli. Er spáð að atvinnuleysið aukist í 3,6% árið 2009 þegar framleiðsluslaki myndast í hagkerfinu. Um leið er spáð að verðbólga, sem var 5,0% árið 2007, verði meiri í ár, eða 4,3% og að 2,5% verðbólgumarkmiði Seðlabankans verði náð á fyrra hluta ársins 2009. Áætlun um afgang á tekjujöfnuði ríkissjóðs árið 2008 er lítið breytt frá haustspá, en sumir tekju- og gjaldaliðir hækka frá fyrri spá á meðan aðrir lækka. Spáð er að afkoma ríkissjóðs snúist í lítinn halla árið 2009. Áfram er miðað við að Seðlabankinn fylgi aðhaldsamri peningastjórn í ár, eða þar til skýr merki eru komin fram um meira jafnvægi í efnahagslífinu. Spáð er að gengi krónunnar gefi lítillega eftir á spátímabilinu.