Greiningardeild Landsbankans spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,2% í desember.

?Gangi þetta eftir verður 12 mánaða hækkun vísitölunnar 7,1%, sem er lækkun úr 7,3% í nóvember.

Bráðabirgðaspá okkar fyrir nóvember hljóðaði upp á 0,3% hækkun vísitölunnar, en við reiknum nú með minni hækkun, m.a. vegna meiri lækkunar bensínverðs en við gerðum áður ráð fyrir,? segir greiningardeildin.

Hagstofan birtir vísitölu neysluverðs 12. desember.