Greiningardeild Landsbankans stendur við spá sína um óbreytta stýrivexti þann 21. desember næstkomandi.

?Undanfarið hefur umræðan þróast á þann veg að líkur á stýrivaxtahækkun séu að aukast. Tölur Hagstofunnar frá í morgun um 0,8% hagvöxt á milli ára á þriðja ársfjórðungi breyta myndinni töluvert og við teljum nú að líkur á vaxtahækkun séu óverulegar,? segir greiningardeildin.

Telur greiningardeildin að stýrivextir hafi náð hámarki í þessari uppsveiflu í 14%.