Ellefu fyrirtæki hafa staðfest kaup á 23 rafknúnum vöruflutningabílum frá Volvo eins og Viðskiptablaðið hefur greint frá. Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar, segir þetta byltingu.

Hann segir að með frumkvæði sínu hafi fyrirtækin ellefu, sem starfa í fjölmörgum geirum atvinnulífsins, tekið af skarið og skipað sér í leiðtogastöðu í orkuskiptum á Íslandi með það að markmiði að sýna fram á að tæknilega séu orkuskiptin möguleg strax í dag og ryðja þannig brautina fyrir aðra. Um sé að ræða eitt stærsta einstaka skref í að draga úr koltvísýringslosun Íslands og um leið svara ákalli og loforði stjórnvalda um orkuskiptaátak í atvinnulífinu.

„Áætlað er að rafknúnu bílarnir aki um 1,2 milljónir kílómetra á ári í stað sambærilegra dísilbíla á sömu akstursleiðum og muni árlega nota um 1,3 milljónir kWst af raforku,” segir Egill. „Markmiðið er að spara um hálfa milljón lítra af dísilolíu á hverju ári með tilheyrandi árlegum gjaldeyrissparnaði og samdrætti í koltvísýringslosun um 1.300 tonn á ársgrundvelli auk útrýmingar á NOx- og sótmengun.”

Volvo FE rafknúinn vörubíll.
Volvo FE rafknúinn vörubíll.

Ísland fremst í röðinni

Egill segir að í ljósi hagstæðra skilyrða á Íslandi fyrir rafknúin ökutæki og mikils vilja íslenskra stjórnvalda til að styðja við orkuskipti í þungaflutningum hafi Volvo Truck, einn stærsti vörubílaframleiðandi heims, boðið Íslandi að vera í hópi fyrstu landa til að hefja sölu á rafnknúnum vöruflutningabílum. Samhliða því hafi framleiðandinn boðið Brimborg sérstakan stuðning til að ýta orkuskiptunum úr vör.

„Væntanlegur stuðningur stjórnvalda við þetta verkefni og við innleiðingu orkuskipta í þungaflutningum mun síðan tryggja að frumkvæði þessara fyrirtækja verði hreyfiafl orkuskipta í þungaflutningum til framtíðar,” segir Egill. „Stjórnvöld og sveitarfélög geta, auk ívilnana, liðkað fyrir rafknúnum vörubílum með því að endurskoða t.d. lög og reglur um stærð og þyngd ökutækja og reglur um akstur rafknúinna ökutækja innanbæjar með það í huga að vélbúnaður bílanna gefur hvorki frá sér mengun né hljóð.”

Viðbrögðin komu á óvart

Starfsmenn Veltis ásamt starfsmönnum Brimborgar hafa unnið að þessu verkefni í rúmt ár.

„Þegar við fengum loks lausan tauminn frá Volvo Truck um að hefja sölu rafmagnsvörubíla eitt fyrst landa í kjölfar upphafs fjöldaframleiðslu og rausnarlegs stuðnings frá Volvo Truck þá biðum við ekki boðanna,” segir Egill. „Við höfðum samband við fjölda fyrirtækja sem voru líkleg til að ríða á vaðið og lögðum fyrir þau þessar nýju orkuskiptalausnir í þungaflutningum frá Volvo Truck. Skjót viðbrögð komu sannarlega á óvart en um leið var einstaklega ánægjulegt að upplifa það frumkvæði og þá framsýni sem þessir leiðtogar í atvinnulífinu sýndu með því að stökkva á orkuskiptavagninn og leggja þannig sitt af mörkum til að ná markmiðum Íslands í að draga úr losun koltvísýrings.”

Minna kolefnisspor

Í vinnu við þetta verkefni og áformin hefur Brimborg upplýst og tekið samtal við Samorku, Orkustofnun, Íslenska nýorku, Samtök verslunar og þjónustu, Bílgreinasambandið, Samtök atvinnulífsins, Landsvirkjun, Landsnet, Umhverfisstofnun og Umhverfisráðuneytið. Segir Egill að viðbrögðin hafi verið einstaklega jákvæð.

Að teknu tilliti til losunar koltvísýrings við framleiðslu og dreifingu á raforku, áætlaðs aksturs og sparnaðar í olíunotkun, er áætlað að þessir rafknúnu vörubílar muni draga árlega úr losun Íslands á 1.333 tonnum af koltvísýringsígildum. Að sögn Egils munu bílarnir ekki eingöngu draga úr kolefnisspori fyrirtækjanna, sem kaupa og reka bílana, heldur munu fyrirtæki sem kaupa þjónustu þeirra njóta þessa í lægra kolefnisspori og viðskiptavinir þeirra njóta þess síðan í lægra kolefnisspori þeirrar vöru og þjónustu sem þau veita.

Tekur tvo og hálfan tíma í hraðhleðslu

Rafhleðslutækni vörubílanna byggir á sömu stöðlum og hleðslubúnaður fólksbíla, bæði í hæg- og hraðhleðslu og getur því einnig nýst til hleðslu fólksbíla, jeppa og sendibíla sem styrkir enn frekar innviðauppbyggingu í landinu.

Hleðslustöðvar til hæghleðslu eru 22 kW (AC) fyrir minni bílana og 43 kW (AC) fyrir þá stærri. Það tekur um 9,5 klst að fullhlaða stærstu bílana og þeir taka við 250 kW (DC) í hraðhleðslu en þannig tekur það 2,5 klst að fullhlaða.

Akstursleiðir hafa verið skoðaðar í hermilíkani frá Volvo Trucks. Þær hafa verið valdar með það í huga að oftast verði bílarnir hlaðnir í lok vinnudags yfir kvöld og nótt og þeir fullhlaðnir að morgni. Á meira krefjandi leiðum verða hraðhleðslustöðvar notaðar til að skjóta raforku inn á bílana þegar færi gefst. Egill segir að verkefnið verði mikill lærdómur um hvernig best sé að haga uppsetningu hleðsluinnviða fyrir þungaflutningabíla og hvernig hleðsla þeirra geti átt sér stað með núverandi dreifikerfi raforku.

Spara 500 þúsund lítra af dísilolíu

Brimborg hefur áætlað í samvinnu við kaupendur með aðstoð hermilíkans Volvo Truck að árlegur akstur bílanna 23 geti verið meira en 1,2 milljónir kílómetra á ári. Miðað við áætlaða raforkunotkun hvers bíls á völdum akstursleiðum þá gætu skiptin yfir í rafmagn þýtt árlega raforkunotkun um 1,3 milljónir kWst af íslenskri, endurnýjanlegri, raforku. Miðað við sömu akstursleiðir og áætlaða olíueyðslu þá kæmi þessi raforkunotkun í stað hálfrar milljón lítra af dísilolíu.

Orkunýtni rafknúinna ökutækja er mun meiri en þeirra sem knúin eru dísilolíu. Í tilraunaakstri á tiltekinni leið þar sem tveir 40 tonna Volvo vörubílar, annars vegar rafknúinn og hins vegar dísilknúinn, óku 345 kílómetra á 80 km meðalhraða var orkunýtni rafmagnsbílsins 50% betri. Ef áætlaðar tölur Brimborgar ganga eftir í þessu verkefni þá er nýtnin enn betri eða um 70%. Meiri nýtni gæti skýrst af vali á leiðum þar sem meðalhraði er lægri og fleiri stop sem hjálpar rafbílnum.

Egill segir að þegar rauntölur úr þessu verkefni berist gætu þær skipt sköpum í mati á því hversu mikil orkuþörfin verður vegna algjörra orkuskipta og þær tölur hjálpað stjórnvöldum að taka ákvarðanir um frekari orkuöflun á Íslandi.

Fyrirtækin sem fá fyrstu bílana

Fyrirtæki: Starfsemi:
Garðaklettur, dótturfélag Kynnisferða Alhliða vöruflutningar
Eimskip Alhliða vöruflutningar
GS Frakt Alhliða vöruflutningar
Pósturinn Póstdreifing
Ölgerðin Drykkjar- og matvæladreifing
Íslenska gámafélagið Sorphirða
Húsasmiðjan Dreifing byggingarefna
Steypustöðin Flutningar á jarðefnum
Torf túnþökuvinnsla Dreifing á túnþökum
Jón og Margeir í Grindavík Vöru- og fiskflutningar
Ragnar og Ásgeir í Grundarfirði Vöru- og fiskflutningar

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast alla fréttina hér.