Lyfjafyrirtækið Alvogen hefur sett fyrstu samheitalyfjaútgáfu flensulyfsins Tamiflu á markað í Bandaríkjunum. Um er að ræða stærstu markaðssetningu fyrirtækisins til þessa. Búast má við að umtalsverður sparnaður náist fyrir bandaríska neytendur með tilkomu lyfsins sem getur numið allt að 56 milljörðum króna (500 milljónum bandaríkjadala) á næstu mánuðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Haft er eftir Róberti Wessman, forstjóra Alvogen, að markaðssetning lyfsins marki tímamót hjá fyrirtækinu. „Frá árinu 2010 höfum við unnið að þróun og skráningu lyfsins og því ánægjulegt að það sé nú komið í sölu. Þetta eru líka góð tíðindi fyrir bandaríska neytendur sem fá nú ódýrari valkost fyrir meðferð við flensu sem mun skila umtalsverðum sparnaði,“ er jafnframt haft eftir Róberti.

Þetta ár hefur verið viðburðaríkt hjá Alvogen, það keypti til að mynda tvö bandarísk lyfjafyrirtæki. Einnig opnaði nýtt Hátæknisetur fyrirtækisins í sumar og þar starfa nú 180 vísindamenn.

„Árlegur Tekjuvöxtur fyrirtækisins hefur að jafnaði verið um 59% undanfarin sjö ár og nær starfsemi Alvogen nú til 35 landa. Bandaríkin eru stærsti einstaki markaður Alvogen en aðrir markaðir eru Suður-Kórea, Tævan, Japan, Kína, Rússland, Rúmenía, Pólland og Búlgaría,“ segir jafnframt í tilkynningunni frá Alvogen.