Bernhard Þór Bernhardsson hefur verið ráðinn Sparisjóðsstjóri við Sparisjóð Mýrarsýslu (SPM) frá og með 3. september. Gísli Kjartansson, sem verið hefur sparisjóðsstjóri SPM lætur af störfum að eigin ósk.

Frá þessu er greint á Vesturlandsvefnum Skessuhorni.

Áður gegndi Bernhard stöðu forstöðumanns viðskiptaþjónustu hjá SPM. Þar áður gegndi Bernhard m.a. stöðu forstöðumanns við Háskólann á Bifröst. Bernhard er Borgfirðingur að uppruna og býr í Borgarnesi.