20.867.000 kr. söfnuðust í styrktarátaki Sparisjóðsins ”Þú gefur styrk” fyrir átta félagasamtök til verkefna á sviði barna og unglinga með geðraskanir. Styrktarátakinu lauk á aðfangadag jóla en styrkirnir voru afhentir forsvarsmönnum félaganna í dag.

Í tilkynnigu vegna söfnunarinnar segir að til að taka þátt í átakinu þurftu viðskiptavinir Sparisjóðsins ekki að kosta neinu til, heldur aðeins að velja eitt af verkefnunum átta og gaf Sparisjóðurinn jafnharðan þúsund krónur til þess verkefnis. Viðskiptavinir voru þó hvattir til að bæta við viðbótarframlagi. Þá gátu aðrir landsmenn einnig lagt söfnuninni lið í gegnum heimasíðu Sparisjóðsins.

Styrkirnir skiptust samkvæmt vilja viðskiptavina og annarra þátttakenda og kom því ekki nákvæmlega sama upphæðin í hlut hvers félags. Hæstan styrk hlaut ADHD félagið 4.1 milljónir sem verður varið til fræðslu, kynningar og námskeiðahalds á landsbyggðinni.

Að meðaltali hlaut hvert félag ríflega 2,5 milljónir í styrk. Sparisjóðurinn þakkar fjölda þeirra viðskiptavina og annarra landsmanna sem að létu gott af sér leiða og gáfu sinn styrk í söfnunina.