Chevrolet Spark, sem reynsluekið var í síðasta bílaþætti Viðskiptablaðsins, er ódýrasti nýi bíllinn á Íslandi. Spark, sem frumsýndur var um þarsíðustu helgi, kostar 1.990.000 krónur og slær þar með út Fiat Panda sem kostar 2.180.000 kr.

Ítalski smábíllinn er nú í öðru sæti en Suzuki Alto er í þriðja sæti yfir ódýrustu bílana en hann kostar 2.190.000 kr. Þetta er samkvæmt verðlista bílaumboðanna í lok maí.