SpKef hefur ákveðið að bjóða upp á breytingar á skilmálum lána þeirra einstaklinga tóku lán til að kaupa stofnfjárbréf í sparisjóðum með láni frá SpKef. Höfuðstóll lána mun taka mið af stöðunni eins og hún var í upphafi lánstímans og verður lántakendum boðið að greiða skuldina með útgáfu skuldabréfs til 25 ára á 3,75% óverðtryggðum vöxtum. Staðgreiðsluafsláttur verður boðinn þeim sem kjósa að staðgreiða lánið eftir skilmálabreytingar.

Leiðin nær til allra þeirra einstaklinga sem stofnuðu til skuldar við Sparisjóðinn í Keflavík vegna stofnfjárkaupa, og heyra nú undir SpKef sparisjóð.

Helstu atriði:

Í tilkynningu frá SpKef kemur fram að skilmálum verður breytt með þeim hætt að skuldabréfin verða færð í upphaflegan höfuðstól, að viðbættum 3,75% óverðtryggðum vöxtum frá útgáfudegi skuldabréfanna.

Erlend lán verða færð á upphaflegt gengi gjaldmiðla að viðbættum 3,75% óverðtryggðum vöxtum. Erlendu lánin verða færð yfir í íslenskar krónur.

Óverðtryggðu lánin eru til allt að 25 ára. Þá verður boðið upp á afslátt sem nemur allt að 10% af heildarstöðum ef lántakandi óskar eftir því að staðgreiða lánin að lokinni skilmálabreytingu.

„Þessi leið verður opin öllum þeim einstaklingum sem tóku fyrrnefnd lán. Lántakendur þurfa að koma í eitthvert af útibúum sparisjóðsins til að ganga frá skilmálabreytingunni,“ segir í tilkynningu.

Stefnt er að því að búið verði að ganga frá skilmálabreytingunum að fullu fyrir febrúarlok.