Sparisjóður Mýrasýslu (SPM) er útgefandi af nokkrum skuldabréfaflokkum sem skráðir eru í Kauphöllinni.

Í  ljósi stöðu félagsins mun SPM ekki greiða afborganir né vexti af þeim flokkum sem til gjalddaga kunna að koma á því tímabili sem áframhaldandi viðræður við innlenda sem erlenda lánardrottna um uppgjör krafna standa yfir, þ.m.t. á flokki SPM 05 01 sem er á gjalddaga á morgun.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá SPM en þann 27. mars síðastliðinn samþykktu stærstu lánardrottnar SPM tillögu að fjárhagslegri endurskipulagningu sjóðsins og voru eignir SPM seldar til Nýja Kaupþings banka sem mun greiða fyrir eignirnar með skuldabréfum og hlutabréfum útgefnum af Nýja Kaupþingi.