Þann 27. janúar sl. undirritaði Sparisjóður Mýrasýslu (SPM) samkomulag við alla helstu lánardrottna sína, innlenda sem erlenda, þess efnis að lánadrottnar skuldbinda sig til að gjaldfella ekki lán sparisjóðsins innan tilskilins frests sem er til 2. mars næstkomandi.

Sá frestur verður nýttur til að semja við lánardrottna sparisjóðsins um aðkomu þeirra að fjárhagslegri endurskipulagning sjóðsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá SPM en sparisjóðurinn hefur um nokkurn tíma unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu sjóðsins eftir að ljóst varð að ekki yrði af samningi við Kaupþing banka hf. í kjölfar hruns íslensku viðskiptabankanna.

Í nóvember 2008 undirrituðu Nýi Kaupþing banki hf. og Borgarbyggð samkomulag um kaup bankans á öllu stofnfé Sparisjóðs Mýrasýslu. Kaupin eru háð því að samningar náist við lánardrottna um fjárhagslega endurskipulagningu sjóðsins auk þess sem fyrirvari er gerður um samþykki Fjármálaeftirlits og Samkeppniseftirlits.

Fram kemur í tilkynningunni að höfuðstóll lána verður ekki greiddur á tímabilinu og heldur ekki vextir af víkjandi lánum, þ. á m. skuldabréfaflokki 05/01 að heildarfjárhæð krónur 279.349.000 á lokagjalddaga 2015 sem tekinn hefur verið til viðskipta í Kauphöllinni.

Sparisjóðurinn mun hins vegar greiða vexti af öllum öðrum lánum, eftir því sem við á, á kyrrstöðutímabilinu og samkomulagið hefur ekki áhrif á stöðu sparifjáreigenda eða þeirra sem eiga almennar viðskiptakröfur á sparisjóðinn.

Þá kemur fram að eigendur skuldabréfa sem tekin hafa verið til viðskipta í kauphöll eru ekki aðilar að þessu samkomulaginu en stefnt er að þátttöku þeirra í fjárhagslegri endurskipulagningu.

„Sparisjóður Mýrasýslu hefur eins og komið hefur fram átt í viðræðum við lánadrottna um nokkurn tíma vegna stöðu sjóðsins og eru sparisjóðsstjóri og stjórn sparisjóðsins eru bjartsýnir á að samningar muni nást um fjárhagslega endurskipulagningu,“ segir í tilkynningu SPM.

„Undirritun samkomulags við lánadrottna er jákvætt skref í átt að því að tryggja framtíðarrekstur sparisjóðsins og að tryggja hagsmuni viðskiptavina og annarra hagsmunaaðila.“