Áætlað tap Sparisjóðs Mýrasýslu (SPM) á fyrstu sex mánuðum ársins er um 4,6 milljarðar króna. Áætlað eigið fé samkvæmt efnahagsreikningi í lok júní 2008 er um 1,5 milljarður króna samanborið við 6,3 milljarða króna í árslok 2007.

Að lokinni stofnfjáraukningu sem nemur 2 milljörðum króna verður eigið fé sjóðsins 3,5 milljarðar króna.

Þetta kemur fram í tilkynningu SPM til Kauphallarinnar en í tengslum við fyrirhugaða stofnfjáraukning í Sparisjóði Mýrasýslu mun stjórn sparisjóðsins leggja fram skýrslu fyrir fulltrúaráðsfund varðandi afkomu sparisjóðsins á fyrstu 6 mánuðum ársins 2008.

Í skýrslunni koma fram upplýsingar um fjárhag sjóðsins úr 6 mánaða bráðabirgðauppgjöri sem ekki hefur verið birt og er ekki áritað eða kannað af endurskoðanda sjóðsins. Til stendur að stjórn afgreiði endanlegt uppgjör í næstu viku sem verður kannað af endurskoðendum sparisjóðsins.

Eiginfjárhlufall samstæðunnar óásættanlegt

„Að mati stjórnenda sparisjóðsins er eiginfjárhlutfall samstæðunnar óásættanlegt, en stefnt er að því að koma eiginfjárhlutfallinu í viðunandi horf með nefndri stofnfjáraukningu og öðrum aðgerðum af hálfu stjórnar sparisjóðsins,“ segir í tilkynningunni.

Þá kemur fram að samkvæmt megin niðurstöðum uppgjörsins er ljóst að mikill viðsnúningur hefur orðið á rekstri og rekstrarumhverfi sparisjóðsins frá áramótum. Þá segir að gengisfall hlutabréfa hefur haft veruleg áhrif á rekstrarafkomu sparisjóðsins en áætlað tap vegna þeirra nam 4,5 milljörðum króna, auk þess sem áætlað tap vegna dóttur- og hlutdeildarfélaga var um 500 milljónir króna sem er mun lakari en áætlanir gerðu ráð fyrir.

„Það sem af er árinu hafa aðstæður fyrirtækja og einstaklinga versnað umtalsvert sökum veikrar stöðu íslensku krónunnar, hárra vaxta og kólnunar hagkerfisins,“ segir í tilkynningunni.

„Áætluð framlög í afskriftareikning útlána að aukast mikið á tímabilinu og námu 1,9 milljarði króna, m.a. þar sem vanskil hafa almennt aukist. Raunlækkun á fasteigna- og hlutabréfaverði undanfarna mánuði hefur haft áhrif á tryggingarstöðu gagnvart lántakendum og þar með á gæði útlána samstæðunnar.“

Samkvæmt tilkynningunni lýsir stjórn sparisjóðsins því yfir að almennur rekstur sparisjóðsins frá 1. júlí sl. til dagsins í dag er í samræmi við rekstraráætlanir. Þá er fyrirséð að fyrirhuguð þátttaka Kaupþings og annarra fjárfesta í stofnfjáraukningu Sparisjóðsins mun treysta rekstrargrundvöll sjóðsins og styrkja hann verulega.