SPRON hf. hefur frestað birtingu uppgjörs fyrir þriðja ársfjórðung vegna óvissu á íslenskum fjármálamarkaði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félagin. Tilkynningin í heild hljómar svona:

„SPRON hf. frestar birtingu uppgjörs fyrir þriðja ársfjórðung vegna áframhaldandi óvissu á íslenskum fjármálamarkaði. Uppgjör þriðja ársfjórðungs verður birt í viku 48 í stað 46 eins og áður var auglýst. Birtingardagur og upplýsingar um kynningarfund í tengslum við uppgjörið verða kynnt síðar.“