Spron hefur átt takmörkuð viðskipti með skuldabréf annarra fjármálastofnana og hefur gert ráð fyrir því að aukinna trygginga yrði óskað.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Spron vegna umfjöllunar um beiðni Seðlabanka Íslands um auknar tryggingar frá Spron.

Í tilkynningunni kemur jafnframt fram að öll innlend greiðslumiðlun Spron hefur um árabil farið í gegnum Seðlabanka íslands án milligöngu Sparisjóðabanka Íslands.