SPRON hefur lokið við yfirferð og útreikninga á eignum Peningamarkaðssjóðsins. Útgreiðsluhlutfall sjóðsins er 85,52% og miðast við lokagengi þann 3.10.2008.

Um heildargreiðslu er að ræða og verður greitt úr sjóðnum þann 17. nóvember 2008.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá SPRON.

Í tilkynningunni kemur fram að útborgun úr sjóðnum verður lögð inn á innlánsreikning sem stofnaður hefur verið á nafni sjóðsfélaga.

„Allir sjóðsfélagar sem fá greitt úr Peningamarkaðssjóði SPRON bjóðast bestu kjör á nýjum innlánsreikningum til lok árs 2009,“ segir í tilkynningunni en nánari upplýsingar um útgreiðslu til sjóðsfélaga, innlánsreikninginn sem upphæðin verður lögð inn á og kjörin sem í boði eru verða send sjóðsfélögum í pósti.

SPRON harmar eignarýrnun og þakkar sjóðsfélögum þolinmæðina

Þá kemur fram að í kjölfar hruns viðskiptabankanna þriggja í byrjun október beindi Fjármálaeftirlitið þeim tilmælum til rekstrarfélaga verðbréfasjóða að peningamarkaðssjóðum yrði slitið og að ekki yrði opnað aftur fyrir innlausnir heldur yrði eign sjóðsfélaga greidd inn á innlánsreikning sjóðsfélaga.

Sú ráðstöfun var gerð til þess að gæta jafnræðis milli sjóðsfélaga og með hagsmuni þeirra að leiðarljósi.

Í tilkynningunni kemur fram að SPRON hefur unnið að því á síðustu vikum að hámarka verðmæti þeirra eigna sem voru í sjóðnum.

„SPRON harmar þá eignarýrnun sem orðið hefur og þau óþægindi sem þeir hafa orðið fyrir vegna lokunar sjóðsins. SPRON þakkar viðskiptavinum ennfremur þolinmæðina sem þeir hafa sýnt starfsmönnum undanfarnar vikur,“ segir í tilkynningunni.

Enn er lokað fyrir eftirtalda sjóði og verður tilkynnt um opnun þeirra síðar:

Langur skuldabréfasjóður, Stuttur skuldabréfasjóður, Íslenskur skuldabréfasjóður og Stýrður hlutabréfasjóður.