Aðalfundur Spron [ SPRON ] samþykkti í gær að helmingur hagnaðar eftir skatta, eða 1.643 milljónir króna, verði greiddar í arð til hluthafa á árinu 2008 vegna ársins 2007.  Arðsrétturinn miðast við hlutaskrá félagsins eins og hún stendur í lok aðalfundardags.

Hluthafar eiga kost á að taka arðinn að hluta eða öllu leyti í formi hlutabréfa í Spron á kauphallargengi þeirra í lok aðalfundardags.  Það þarf þó að tilkynna um það fyrir lok dags 3. apríl.