Stjórn Spron [ SPRON ] hefur heimild til að kaupa allt að 10% af eigin bréfum eða taka þá að veði, samkvæmt því sem samþykkt var á aðalfundi félagsins í gær. Heimildin stendur í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup og veðsetning hluta fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma.

Kaupverð hluta skal vera lægst 10% lægra og hæst 10% hærra, en skráð kaup- og sölugengi í Kauphöll Íslands.