Samstarfssamningur Spron og Badmintonsambands Íslands var undirritaður í dag. Samningurinn er til fimm ára eða fram til Ólympíuleika 2012. Með samningnum verður ungmenna-, kynningar- og fræðslustarf Badmintonsambandsins eflt verulega.

Í tilkynningu vegna samningsins segir: „Samningurinn við Spron er tímamótasamningur fyrir allt starf Badmintonsambands Íslands. Hann gerir sambandinu kleift að ráða starfsmann til að sinna fræðslu- og kynningarmálum og leggja meiri áherslu á þann málaflokk en áður hefur verið gert. Þá mun samningurinn einnig styrkja stoðir landsliðsstarfsins og tryggja að áfram verði hægt að vinna vel með afreksfólki í badminton,“ segir Sigríður Guðbjörg Bjarnadóttir, formaður Badmintonsambands Íslands.

Afreksmál eru stór hluti af starfi Badmintonsambands Íslands. Næsta verkefni badmintonlandsliðsins er Evrópumót liða og einstaklinga sem fram fer í Herning í Danmörku 12.-20. apríl næstkomandi. Ísland vann sér þátttökurétt á mótinu með því að sigra Evrópukeppni B-þjóða í janúar 2007. Þá eru framtíðarmarkmið Badmintonsambandsins í afreksmálum þau að hægt verði að koma bæði karl- og kvenspilara á Ólympíuleikana í London 2012. Slíkt verkefni kostar mikla vinnu og fjármagn. Öflugir styrktaraðilar eins og Spron eru nauðsynlegir til að hægt sé að ná þessum markmiðum. Góð umgjörð og aðstaða fyrir afreksfólkið er líka mikilvægur þáttur sem er svo sannarlega til staðar hjá TBR í Gnoðarvogi.

Margt nýtt er ennfremur á döfinni hjá Badmintonsambandinu og er það að stórum hluta samningurinn við Spron sem gerir sambandinu kleift að láta þau verkefni verða að veruleika. Sem dæmi má nefna að í undirbúningi er útgáfa á vandaðri bók um badminton og badmintonþjálfun. Þá verða gefnir badmintonspaðar í íþróttahús víðsvegar um landið til að hvetja almenning enn frekar til þátttöku í íþróttinni.

„Það er okkur hjá Spron mikill heiður og ánægja að innsigla þennan samning við Badmintonsambandið. Spron hefur um nokkurt skeið stutt Rögnu Ingólfsdóttur, Íslandsmeistara í badminton, í undirbúningi þátttöku í Ólympíuleikunum í Kína næsta sumar og við lítum á þennan samning sem eðlilegt og ánægjulegt framhald á því samstarfi. Íslenskt badmintonfólk er í fremstu röð íslenskra íþróttamanna og íþróttin hefur verið í mikilli uppsveiflu að undanförnu,“ segir Guðmundur Hauksson, forstjóri Spron.