Bráðabirgðastjórn Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis hf. (SPRON) hefur í dag sótt um slitameðferð til Héraðsdóms Reykjavíkur með vísan til laga um fjármálafyrirtæki.

Þá hefur sama stjórn sótt um slitameðferð fyrir Frjálsa fjárfestingabankann, dótturfélags SPRON.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá SPRON en þann 21. mars 2009 ákvað Fjármálaeftirlitið að taka yfir vald hluthafafundar og víkja félagsstjórn SPRON frá í heild sinni. Jafnframt skipaði Fjármálaeftirlitið skilanefnd (nú bráðabirgðastjórn) fyrir SPRON, sem tók við öllum heimildum stjórnar skv. ákvæðum laga sem þá var í gildi, þ.m.t. yfir Frjálsa fjárfestingabankann.

Fram kemur í tilkynningunni að bráðabirgðastjórn SPRON hefur frá því hún var skipuð unnið að því að framkvæma ákvarðanir Fjármálaeftirlitsins og gætt að því að varðveita eignir félagsins og endurskipuleggja rekstur þess með hagsmuni kröfuhafa að leiðarljósi.

Ljóst er að félagið uppfyllir ekki lengur skilyrði laga fyrir áframhaldandi rekstri sem fjármálafyrirtæki og telur stjórn félagsins nauðsynlegt að óska eftir slitum á félaginu í samræmi við lög.