Spron [ SPRON ] hefur hafið samstarf við Kaupþing [ KAUP ] um rekstur og útgáfu e-kortanna og hafa fyrirtækin stofnað nýtt félag, Ekort ehf., um reksturinn. Markmiðið með samstarfinu er að  tryggja framgang og aukna útbreiðslu e-kortanna á íslenskum kreditkortamarkaði. Félagið sinnir einnig samskiptum við samstarfsfyrirtæki og útgefendur.