Spron hefur veitt styrki til viðskiptavina sinna, samtals rúmar þrjár milljónir króna en rúmlega 600 viðskiptavinir sóttu um styrki að þessu sinni.

Í tilkynningu frá Spron kemur fram að meðal styrkja var 100.000 króna brúðkaupsstyrkur, tveir námslokastyrkir hvor að upphæð 100.000 krónur, og sjö námsstyrkir, hver að uppæð 350.000 krónur.