Í gær komu saman á fundi í Kaupmannahöfn lykilaðilar í stuðningsumhverfi sprotafyrirtækja á Norðurlöndunum og skrifuðu undir stefnulýsingu sem rammar inn áður óformlegt samstarf þeirra á milli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandic Startups.

Stefnumiðuðu samstarfi er ætlað að vera vettvangur fyrir aukna tengslamyndun, miðlun þekkingar, skilgreinda árangursmælikvarða og styrkja enn frekar ásynd og ímynd norræna tækni- og sprotaumhverfisins á alþjóðavísu.

„Undanfarin ár höfum við unnið markvisst að því að efla samstarf íslenska sprotasamfélagsins við hin Norðurlöndin í því skyni að auka aðgengi að erlendu fjármagni, laða að erlenda sérfræðinga og styðja alþjóðlega sókn sprotafyrirtækja. Undir því flaggi höfum við m.a. farið með yfir 70 íslensk sprotafyrirtæki til staða á borð við San Francisco, New York, Shanghai og annarra borga sem taldar eru vera mekka frumkvöðlastarfs. Þannig fá fyrirtækin kraftinn beint í æð og átta sig gjarnan fljótt á því að þau þurfa að gefa vel í til að verða samkeppnishæf á alþjóðamarkaði,“ segir Salóme Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Icelandic Startups við tilefnið.

“Til lengri tíma litið getur formlegt samstarf sem þetta orðið mikilvæg rödd frumkvöðla gagnvart stjórnvöldum um bætt rekstrarumhverfi og starfsskilyrði, en til að byrja með munum við leggja áherslu á að halda áfram því góða starfi sem hefur unnist í tengslum við ímynd og alþjóðlegt markaðsstarf, en fjárfesting í norrænum fyrirtækjum hefur vaxið undanfarin ár, auk þess sem mörg af stærstu tæknifæyrirtækjum heims koma frá þessu svæði, s.s. Spotify, Skype, Klarna, Unity o.fl.,” bætir hún við.

„Stefnuyfirlýsingin var undirrituð af hátt í 20 aðilum sem fóstra umhverfi nýsköpunar á Norðurlöndunum, þ.á.m. Icelandic Startups, Slush; einni stærstu tækniráðstefnu Evrópu, SUP46 frá Stokkhólmi og The Nordic Web, einni helstu fréttaveitu um fjármögnun og starfsemi sprotafyrirtækja af Norðurlöndunum. Á næstu vikum verður unnið að formlegu skipulagi samstarfsins,“ er tekið fram í yfirlýsingunni.

„Við munum kanna möguleikann á því að ráða einstakling til að stýra sameiginlegri starfsemi okkar og koma á fót sérstakri stjórn skipaðri fulltrúum allra Norðurlandanna,” segir Neil Murray, stofnandi og ritstjóri The Nordic Web.

Formlegt samstarf miðar m.a. að því að:

  • Vekja áhuga erlendra sérfræðinga á að starfa á Norðurlöndunum
  • Bæta aðgengi sprotafyrirtækja að fjármagni
  • Styðja alþjóðlega sókn sprotafyrirtækja
  • Samræma vinnuaðferðir og miðla þekkingu
  • Byggja upp samfélag sprota á Norðurlöndunum undir einum hatti