Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, hefur lagt fram fyrirspurn á Alþingi til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um flutning höfuðstöðva Fiskistofu.

Spyr hún þannig ráðherrann hvort hann telji að lagaheimild þurfi til að flytja höfuðstöðvar Fiskistofu frá Hafnarfirði norður til Akureyrar. Spyr hún jafnframt hvar slíka heimild sé að finna í lögum.

Birgitta leggur fram greinargerð með fyrirspurninni, en þar segir að í bréfi ráðherra til starfsmanna Fiskistofu frá 10. september 2014 komi fram að tekin hafi verið sú stefnumarkandi ákvörðun að flytja höfuðstöðvar stofnunarinnar til Akureyrar.

Segir hún jafnframt í greinargerðinni að öll ytri skilyrði fyrir flutningi höfuðstöðva Fiskistofu til Akureyrar séu þau sömu og þegar þáverandi umhverfisráðherra, með minnisblaði 3. júní 1996, hafi kynnt starfsmönnum Landmælinga Íslands þá ákvörðun sína að flytja starfsemi Landmælinga upp á Akranes. Með dómi Hæstaréttar nr. 312/1998 hafi ákvörðun umhverfisráðherra um að flytja starfsemi Landmælinga upp á Akranesi hins vegar verið dæmd ólögmæt.