Gengi flestra félaga á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag var nokkuð frábrugðið því sem gilti í gær og mætti segja að markaðurinn hafi tekið sundtak upp á við. Úrvalsvísitalan styrktist um 1,67% eftir að hafa lækkað um 3,51% í gær.
Velta markaðarins í dag nam tæpum 17 milljörðum króna en stærstan hluta þess má rekja til viðskipta í Heimavöllum í kjölfar viðskipta hins norska Fredensborg AS á bréfum í félaginu. Félagið keypti í dag tæplega tvo þriðju bréfa í félaginu fyrir hátt í 11 milljarða króna. Fyrir átti félagið tíu prósenta hlut í Heimavöllum. Yfirtökutilboð hefur verið sent eftirstandandi hluthöfum og stefnir hinn nýi eigandi að afskráningu félagsins af aðalmarkaði.
Mesta hækkun dagsins var Heimavalla eða tæp tíu prósent. Sé það tekið á ný út fyrir sviga var hækkunin mest hjá Brim og Marel, rúm 2,6%. Fyrrnefnda félagið hækkaði í 37 milljón króna viðskiptum en viðskipti með hið síðarnefnda námu tæpum milljarði.
Hagar, Iceland Seafood, Reginn og Síminn hækkuðu öll í dag um 1-2%. Icelandair stóð aftur á móti í stað milli daga og hið sama gerði Sjóvá. Hækkun Arion, Eimskipa, Festi, Kviku, Reita og Skeljungs var á bilinu 0,3-0,7%.
Fjögur félög lækkuðu í dag en það voru Sýn, TM, VÍS og Origo. Mest var lækkunin hjá Sýn, tæpt 1,5%, og tryggingafélögin tvö lækkuðu um tæpt prósent. Lækkun Origo var smávægileg eða 0,23%.