Rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja var afar óhagstætt á árinu 2008 vegna gengisfalls krónu, verðbólgu og hárra vaxta.

Af þessum sökum verða fjármagnsliðir Sláturfélags Suðurlands svf. (SS) afar óhagstæðir á árinu 2008 í samanburði við árið á undan sem veldur því að umtalsvert tap verður á rekstri félagsins á árinu 2008 þó endanlegar afkomutölur liggi ekki fyrir.

Þetta kemur fram í afkomuviðvörun frá SS.

Þar kemur fram að SS var með óverulegar stöður í framvirkum samningum, hlutabréfum og öðrum verðbréfum við fall bankanna og varð því ekki fyrir beinu tjóni vegna þess.

„Velta félagsins á árinu hefur aukist talsvert og almennur rekstur gengið vel og því fyrirséð að hagnaður fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) verður mun hærri en árið 2007,“ segir í tilkynningu félagsins.

Til að styrkja greiðslustöðu félagsins hafa verið nýtt ákvæði í lánasamningum til frestunar á stærri afborgunum lána fram til ársins 2010.