Viðskiptajöfnuður var hagstæður um 5,6 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi borið saman við 15,1 milljarða króna óhagstæðan jöfnuð á sama tíma í fyrra, að því er fram kemur í bráðabirgðayfirliti Seðlabankans um greiðslujöfnuð við útlönd á fjórðungnum og um stöðu þjóðarbúsins í lok fjórðungsins.

Fram kemur í bráðabirgðayfirlitinu að afgangur af vöruskiptum við útlönd nam 25,6 milljörðum króna og nam afgangur af þjónustuviðskiptum 600 milljónum króna. Á sama tíma var jöfnuður þáttatekna neikvæður um 20,7 milljarða.

Viðskiptajöfnuður án áhrifa innlánsstofnana í slitameðferð  var hagstæður um 14,4 milljarða króna samanborið við 4,0 milljarða króna óhagstæðan jöfnuð í fjórðungnum á undan. Fram kemur í bráðabirgðayfirlitinu að halli á þáttatekjum var eins og áður að miklu leyti vegna innlánsstofnana í slitameðferð. Reiknuð gjöld vegna þeirra námu 14,2 milljörðum króna og tekjur um 5,3 milljörðum króna. Neikvæð áhrif innlánsstofnana í slitameðferð á þáttatekjujöfnuð nema 8,9 milljörðum króna og jöfnuður þáttatekna án áhrifa þeirra því óhagstæður um 11,9 milljarða.

Þá námu erlendar eignir þjóðarbúsins 4.597 milljörðum króna í lok fyrsta ársfjórðungs en skuldir 12.846 milljörðum króna. Hrein staða við útlönd var því neikvæð um 8.249 milljarða króna og hækka nettóskuldir um 31 milljarða króna á milli ársfjórðunga. Að frátöldum innlánsstofnunum í slitameðferð námu eignir þjóðarbúsins 2.617 milljörðum króna og skuldir 3.071 milljörðum króna. Hrein staða þjóðarbúsins var því neikvæð um 453 milljarða. Þetta var engu að síður 37 milljarða lækkun á milli ársfjórðunga.