Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið birti í dag úrskurð vegna stjórnsýslukæru Brugghússins-Steðja vegna ákvörðunar heilbrigðiseftirlits Vesturlands frá 13. janúar 2014 um að stöðva markaðssetningu og innkalla hvalabjór.

Niðurstaða ráðuneytisins er sú að staðfesta beri ákvörðun heilbrigðiseftirlitsins þar sem kærandi, Brugghús-Steðja, hafi ekki gætt að skyldu sinni sem matvælafyrirtæki samkvæmt lögum um matvæli, að uppfylltar væru kröfur laga og stjórnvaldsreglna sem gilda um starfsemi hans. Hvalmjöl sem kærandi notaði við framleiðslu hvalabjórs sé aukaafurð dýra og um meðhöndlun þeirra gildi ákvæði laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim sem kærandi gætti ekki við framleiðslu bjórsins.

Þrátt fyrir þetta telur ráðuneytið að hvalabjórinn hafi verið öruggur samkvæmt 1. gr. laga um matvæli, en það hafi rannsóknarsýni á bjórnum sýnt fram á.